Main content
main
Alma og Primo VE samningur í höfn
05.11.2020
Þann 4. nóvember var undirritaður samningur við Ex Libris um afnot af Alma bókasafnskerfinu og Primo VE leitargáttinni.
Alma er veflægt og nútímalegt bókasafnskerfi sem mikil reynsla er komin á. Primo VE er nýrri lausn en byggir á eldri fyrirmynd, Primo. Alma og Primo VE eru skýjalausnir sem hýstar eru í gagnaveri Ex Libris í Amsterdam. Bókasöfnin munu fá aðgang að kerfunum í gegnum netið (Saas – Software as a Service) líkt og nú er alsiða.
Undirbúningur innleiðingar Alma og Primo VE hefst á næstu vikum. Innleiðingin sjálf mun hefjast á næsta ári og standa fram á árið 2022.