Main content
main
Árslokatölfræði 2019
Árslokatölfræði fyrir aðildarsöfn Gegnis 2019 er komin á vefinn. Í árslokatölfræðinni eru settar fram mælanlegar stærðir í Gegni svo sem fjöldi útlána, lánþega, eintaka og titla á ársgrundvelli sjá nánar: https://landskerfi.is/sites/default/files/arslokatolfraedi-202/landskerfi_bokasafna_-_skyringar_2019.pdf Myndin sýnir hlutfallslega breytingu milli ára á útlánum eftir safnahópum 2017-2019. Breyting á milli ára byggir á undangengnu ári, sjá töflu. Það má glöggt sjá að hefðbundin útlán háskólabóka- og sérfræðisafna hafa dregist mikið saman á meðan útlán almenningsbókasafna hafa aukist síðastliðin tvö ár. Þegar litið er til grunnskólasafnanna þá hafa útlánin verið í sókn en einhverra hluta vegna varð samdráttur í útlánum þeirra árið 2019.
Útlán eftir safnahópum 2016 - 2019
Almenningssöfn |
Háskóla- og sérfræðisöfn |
Grunnskólasöfn |
||||
Ár |
Útlán |
% Hækkun/lækkun |
Útlán |
% Hækkun/lækkun |
Útlán |
% Hækkun/lækkun |
2016 |
2.026.563 |
|
157.934 |
|
837.442 |
|
2017 |
1.926.430 |
-4,9% |
144.649 |
-8,4% |
859.064 |
2,6% |
2018 |
1.987.290 |
3,2% |
134.270 |
-7,2% |
891.374 |
3,8% |
2019 |
2.050.517 |
3,2% |
133.821 |
-0,3% |
875.017 |
-1,8% |
*Athugið að í þessa töflu vantar framhaldsskólasöfn.