Main content
main
![](https://landskerfi.is/sites/default/files/styles/big_image_to_gallery/public/news/adalf_0_0.png?itok=FubzAkpG)
Fréttir frá aðalfundum 2023
Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. var haldinn í húsakynnum félagsins þann 9. maí síðastliðinn. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem farið var yfir ársskýrslu stjórnar, ársreikninga og kosnir voru nefndarmenn í stjórn. Önnur mál sem voru til umfjöllunar voru m.a. innleiðing á nýja bókasafnskerfinu.
Hægt er að nálgast skýrslur stjórnar og fundargerðir hér.
Þriðjudaginn 30. maí var haldinn aðalfundur Rekstarfélags Sarps í Þjóðminjasafni Íslands. Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum var farið var yfir þann undirbúning og vinnu sem framundan er vegna innleiðingu á nýjum Sarpi. Við lok fundarins var fulltrúi Zetcom GmbH, Dominic Gertsch með kynningu á MuseumPlus, nýja skráningarkerfinu.
Fundargerðir og skýrslur stjórnar eru aðgengilegar hér.
Við þökkum þeim sem mættu kærlega fyrir komuna.
horizontal
print-links
![Printer-friendly version Printer-friendly version](https://landskerfi.is/sites/all/modules/contrib/print/icons/print_icon.png)