Main content
main
Leitir.is - vefsíður fyrir stök söfn
Leitir.is - vefsíður fyrir einstök skóla- og almenningsbókasöfn núna tilbúnar. Þessar síður bjóða upp á leit í eigin safni og völdum gangasöfnum eftir því sem við á.
Á þessum vefsíðum bætist forskeyti framan við vefslóðina leitir.is. Þetta er best að útskýra með dæmi:
Vefsíða Hamraskóla er https://hamraskoli.leitir.is, vefsíða Fjölbrautaskóla Suðurnesja er https://fjolsud.leitir.is og Bókasafnið í Reykjanesbæ hefur vefslóðina https://reykjanesbaer.leitir.is. Hver safnakjarni í Gegni hefur eigin auðkennislit og þar sem þessi dæmasöfn tilheyra þremur ólíkum safnakjörnum (GRUNNSK, FRAMHSK og ALM) hefur hvert þeirra sinn lit.
Á flestum þessum safnasíðum eru neðangreindir leitarmöguleikar í boði:
- Mitt bókasafn: leitin afmarkast við þitt bókasafn og valin varðveislusöfn
- Tímaritsgreinar: úr Gegni, varðveislusöfnum og landsaðgangi
- Öll bókasöfn: leitað er í öllum söfnum í Gegni
Tilgangur safnasíðnanna er eingöngu að gera söfnum kleift að leita aðeins í safnkosti síns safns. Þær koma ekki í staðinn fyrir landsgáttina leitir.is þar sem fleiri leitarmöguleikar eru í boði og einnig leitað í fjölbreyttari gögnum.
Svona finnið þið vefslóð fyrir ykkar safn:
- Farið á vefslóðina https://lb.is/kerfin/innleiding-almaprimo-ve/ny-leitargatt-primo-ve/vefslodir-einstakra-safna/vefslodir-einstakra
- Opnið þar viðeigandi excel skjal (hafa öll endinguna -stok_sofn.xlsx) og leitið að ykkar safni
- almenningbokasofn
- framhaldsskolar
- grunnskolar
- haskolar_landsbyggðarinnar
Athugið að samsteypusöfn eru flokkuð með almenningsbókasöfnum.
Frekari upplýsingar má nálgast á slóðinni https://lb.is/kerfin/innleiding-almaprimo-ve/ny-leitargatt-primo-ve/ny-leitargatt-primo-ve. Þar er líka leiðbeint um innskráningu og fleira.
Ef þið lendið í einhverjum vandamálum við að opna safnasíðurnar þá getur verið gagnlegt að hreinsa flýtiminnið (e. cache) og kökur (e. cookies) í vafranum.
Stefnt er að því að bjóða upp á kynningar um leitir.is í október. Þær verða auglýstar á vefnum okkar landskerfi.is.