Main content
main
Nýr starfsmaður Landskerfis bókasafna
18.01.2018
Valgeir Helgi Bergþórsson hóf störf sem verkefnastjóri hjá Landskerfi bókasafna hf. í byrjun janúar. Hann er menntaður sem stjórnmálafræðingur og leggur stund á nám í verkefnastjórnun við HÍ. Valgeir starfaði síðast hjá Verifone sem hópstjóri tæknimanna í framlínu og hafði umsjón með sölu og þjónustu til viðskiptavina. Áður var hann starfsmaður Símans fyrst sem þjónustufulltrúi og síðar sem fulltrúi eftirvinnslu og endursöluaðila. Starfsskyldur Valgeirs snúa einkum að stjórnun verkefnis um útboð, val og innleiðingu á nýju bókasafnskerfi.