Main content
main
Um notendanöfn og lykilorð
30.05.2013
Á notendaráðstefnu Aleflis sem haldin var 24. maí síðastliðinn voru kynntar breytingar á meðhöndlun kennitalna í Gegni, sjá glærur.
Breytingarnar varða úthlutun notandanafna og lykilorða til lánþega vegna innskráningar á leitir.is og gegnir.is. Breytingarnar eru gerðar til að tryggja öryggi persónuupplýsinga lánþega.
Helstu atriði eru:
• | Lánþegar ættu helst ekki að nota kennitölu sem notandanafn við innskráningu á vefi |
• | Skylt er að upplýsa lánþega um að hann hafi val um hvaða notandanafn hann notar við innskráningu |
• | Lánþegar mega alls ekki nota hluta af kennitölu sem lykilorð |
• | Reiturinn „Strikamerki“ má ekki lengur innihalda kennitölu |
Landskerfi bókasafna mun keyra inn ný strikamerki þar sem kennitala er í strikamerkisreit og breyta lykilorðum, séu þau kennitala eða hluti af kennitölu. Verkið verður að mestu leyti unnið á haustdögum og kynnt nánar í sumar og í haust.