Main content
main
Minnisblað fyrir skráningu Bóka
Cecilie Gaihede og Þorvaldur Böðvarsson, haust 2019.
Inngangur:
Þessar leiðbeiningar eiga við um skráningu aðfanga í Bókaskrá og fjalla um helstu aðgerðir tengdar skráningu bóka í Sarpi.
Skrá Bók:
- Þegar skráning er hafin er smellt á Aðföng -> Bækur. Þá birtist yfirlitsgluggi með tilheyrandi undirskrám.
- Þá er smellt á „STOFNA FÆRSLU“
- Síðan er hraðskráningarsnið valið hér ef við á (Ef hraðskráningarsnið er valið, má lesa nánar um það í Minnisblað fyrir stofnun Hraðskráningarsniðs). Skráð er í opna tölureitinn „Fjöldi“ ef verið er að skrá ákveðinn fjölda aðfanga í einu. Síðan er smellt á „Samþykkja“. Sjá mynd:
Í kjölfarið birtist aðfangasniðið
Næstu skref:
Mælt er með að byrja skráningu með að tengja og hlaða upp í „myndir/skjöl/teikningar“. Hægt er að tengja eins margar myndir og þarf.
- Til að tengja mynd/skjal/teikningu við skráninguna er smellt á „Hlaða upp mynd/skjali/teikningu“ Sjá mynd:
Skráning mynda:
- Velja „Choose file“
- Velja síðan myndina, smella svo á „Open“
- Að lokum er smellt á „Samþykkja.“ Ef vill er hægt er fylla út viðeigandi upplýsingar um rafræna mynd/skjal/teikningu.
Grunnupplýsingar
- Hér eru upplýsingar um bókina settar inn eins ítarlega og hægt er. Mælt er með að renna vel yfir alla skráningarmöguleikana í aðfangasniðinu.
- Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasnið eru: Undirskrá, Safnnúmer, Titill og Fjöldi.
- Til að nálgast ítarlegri upplýsingar um ákveðin skráningaratriði og nákvæmari lýsingar á skráningarreitunum er mælt með að skoða kafla I. Bækur í Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem hægt er að nálgast á þjónustuvefnum á landskerfi.is.
- Síðan er smellt á „Vista“. Sjá mynd:
Aðrar upplýsingar
- Hér er mikilvægt að skrá í frjálsu textareitina allar nánari upplýsingar um bókina sem vitað er um Þær grunnupplýsingar sem gera bókina að safngrip.
- Gott er að hafa það í huga að reitirnir „Lýsing“ „Sýningartexti“ og „Heimildir“ eru reitir sem birtast á ytri vef sarpur.is ef valið er að birta bókina þar. Það þarf því að gæta þess með almenning í huga að textinn í þessum reitum sé vel unnin og lýsandi fyrir bókina.
- Síðan er smellt á „Vista“