Main content
main
Minnisblað fyrir skráningu í Húsaskrá
Cecilie Gaihede og Þorvaldur Böðvarsson, haust 2019.
Inngangur:
Þessar leiðbeiningar eiga við um skráningu í Húsaskrá og fjalla um helstu aðgerðir tengdar skráningu húsa í Sarp.
Skrá Hús:
- Þegar skráning er hafin er smellt á Aðföng -> Hús. Þá birtist yfirlitsgluggi með tilheyrandi undirskrám.
- Þá er smellt á „STOFNA FÆRSLU“ Sjá mynd:
Í kjölfarið birtist aðfangasniðið
Næstu skref:
Mælt er með að byrja skráningu með að tengja og hlaða upp í „myndir/skjöl/teikningar“. Hægt er að tengja eins margar myndir og þarf.
- Til að tengja mynd/skjal/teikningu við skráninguna er smellt á „Hlaða upp mynd/skjali/teikningu“ Sjá mynd:
Skráning mynda:
- Síðan „Choose file“
- Velja síðan myndina smella á „Open“
- Að lokum er smellt á „Samþykkja.“ Ef vill er hægt að fylla út viðeigandi upplýsingar um rafrænu myndina/skjalið/teikninguna. Sjá mynd:
Grunnupplýsingar
- Hér eru upplýsingar um húsið settar inn eins ítarlega og hægt er. Mælt er með að renna vel yfir alla skráningarmöguleikana í aðfangasniðinu.
- Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasnið eru: Undirskrá og Hús.
- Til að nálgast ítarlegri upplýsingar um ákveðin skráningaratriði og nákvæmari lýsingar á skráningarreitunum er mælt með að skoða kafla IV. Hús í Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem hægt er að nálgast á þjónustuvefnum á landskerfi.is.
- Síðan er smellt á „Vista“. Sjá mynd:
Aðrar upplýsingar
- Hér er mikilvægt að skrá í frjálsa textareitinn allar nánari upplýsingar um húsið sem vitað er um.
- Gott er að hafa það í huga að nokkrir af reitunum birtast á ytri vef sarpur.is ef valið er að birta húsið þar. Það þarf því að gæta þess með almenning í huga að textinn í þessum reitum sé vel unninn og lýsandi fyrir húsið.
- Síðan er smellt á „Vista“