Main content
main
Minnisblað fyrir skráningu Örnefna
Cecilie Gaihede og Þorvaldur Böðvarsson, haust 2019.
Inngangur:
Í örnefnaskrá er hægt að skrá örnefni sem lýsingu í texta og sem stafrófslista og eru heitin númeruð með vísan í örnefnalýsingu hvers svæðis/jarðar. Notkun Örnefnaskrár er frekar takmörkuð og inniheldur þetta minnisblað því einungis grunnleiðbeiningar. Fyrir frekara útskýringar er hægt að færa bendilinn á spurningamerkin sem birtast í skráningarsniðinu eða skoða Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem er aðgengileg á þjónustuvef okkar á landskerfi.is.
Skrá Örnefnasvæði/Jörð:
Til að geta skráð örnefni verður fyrst að stofna Jörð eða Minjasvæði og eru örnefnin skráð undir öðru hvoru.
1. Farið er í „Aðföng“ og valið „Örnefni“.
2. Smellt á „Stofna jörð“ eða „Stofna örnefnasvæði“ eftir því við hvort á. Sjá mynd:
Skrá jörð:
Skrá Örnefnasvæði:
Skráningarsnið jarðar
1. Hér er hægt að skoða skráðar örnefnalýsingar á viðkomandi jörð.
2. Valkvætt að tengja örnefnasvæði við jarðarsniðið
3. Skilyrt, tengja verður Stað við sniðið. Sjá mynd:
4. Gefa verður örnefnasvæðinu heiti.
5. Hér listast upp jarðir sem og skráðar örnefnalýsingar sem örnefnasvæðið er tengt í.
6. Skrá verður einhver af þessum gildum í sniðinu. Sjá mynd:
Skrá Örnefni:
Skráning örnefna fer ávallt fram undir jörð með því að skráð er örnefnalýsing.
1. Smellt er á „Skrá færslu“ í aðgerðastiku yfirlitsglugga örnefna. Sjá mynd:
2. Skráningarsnið örnefnalýsingar opnast og það útfyllt eftir bestu getu.
3. Staðháttalýsing er sett í reitinn Lýsing og listi yfir örnefni í reitinn Örnefni.
4. Síðan er smellt á „Vista“ neðst til hægri á síðunni til að ljúka skráningunni.