Main content
main
Upplýsingar um aðild að Sarpi
01.10.2015
Samstarfs- og sameignaraðilar
Rétt til aðildar að Sarpi eiga höfuðsöfn og viðurkennd söfn sem falla undir safnalög nr. 141/2011. Söfn og menningarstofnanir, sem varðveita heimildasöfn sem eru í eigu ríkis og/eða sveitarfélaga, geta einnig sótt um sameignaraðild að félaginu.
Söfn, félög og aðrir lögaðilar sem ekki eru í eigu ríkis og/eða sveitarfélaga og/eða falla ekki undir ofangreind safnalög geta orðið samstarfsaðilar að félaginu.
Gengið er frá aðild að Sarpi með undirritun samnings um notendaleyfi.
Leiðsögn til safna um skráningu í Sarp
- Rekstrarfélag Sarps rekur og ber ábyrgð á Sarpi en söfnin sjálf eiga gögnin í kerfinu og bera ábyrgð á þeim.
 - Almennt gildir sú regla að söfnum er aðeins heimilt að skrá gripi sem eru hluti safneignar þeirra í Sarp.
 - Söfn skulu ekki skrá gripi félagasamtaka eða annarra aðila sem ekki eru söfn, í Sarp nema viðkomandi aðili afhendi safninu gripina til eignar.
 - Söfn eða safnvísar, sem ekki eru aðilar að Sarpi, er ekki heimilt að skrá gripi sína í skrá annars safns sem er aðili að Sarpi. Ef eigandi safnanna er sá sami getur RS þó heimilað aðildarsafninu að skrá safnkost minni safnsins í undirskrá í eigu þess og skal þá gerður viðauki við notendaleyfissamning vegna Sarps. Standa þarf skil á árlegri aukagreiðslu sem nemur ársverkum umrædds safns eða safnvísis til RS vegna slíks samkomulags.
 
Hvað er innifalið í aðild safns að Sarpi
- Skráningar- og umsýsluaðgangur að Sarpi
 - Reglulegar uppfærslur og viðhald Sarps og sarpur.is
 - Hýsing, afritataka og rekstur Sarps og sarpur.is
 - Notendaþjónusta í gegnum verkbeiðnakerfi og þjónustusíma
 - Aðgangur að leiðbeiningum og kennsluefni á þjónustuvef
 - Aðgangur að skráningarhandbók Sarp
 - Kennsla á notkun Sarps
 - Miðlun safnskosts til almennings í gegnum sarpur.is
 - Vefsýningar fyrir almenning á sarpur.is
 - Gagnvirk samskipti við almenning og aðra í gegnum Veistu meira og Pantanir á sarpur.is