Main content
main
Spurt og svarað um gangsetningu nýs bókasafnakerfis
Um mánaðarmótin apríl/maí 2022 voru haldnir kynningarfundir um gangsetningaráætlun nýs bókasafnakerfis (Alma og Primo VE) en kerfið verður opnað á tímabilinu 9. -13. júni. Á fundunum komu fram ýmsar spurningar og fara svör við þeim hér að neðan.
Upplýsingar um framkvæmd og tímasetningar er að finna í glærum frá fundunum en þær má nálgast á https://landskerfi.is/kerfin/innleiding-almaprimo-ve/stada-verkefnisins/stada-verkefnisins.
Nr | Spurningar | Svör |
---|---|---|
1 |
Er hægt að bæta við eintökum frá og með 9. maí? |
Nei, það verður ekki hægt. |
2 |
Hversu lengi verður ekki hægt að tengja og skrá inn nýtt efni? |
Frá 9. maí til 13. júní. |
3 | Er hægt að bæta við lánþegum eftir 9. maí? | Já, til og með 30. maí. |
4 | Er hægt að endurnýja lánþegakort eftir 9. maí? | Já, til og með 30. maí. |
5 | Hvenær verður lokað á frátektir? | Líklega eftir 30. maí, þetta atriði er í skoðun. |
6 | Hversu lengi verður ekki hægt að nota sjálfsafgreiðsluvélar? | Frá 31. maí til 13. júní. |
7 | Flytjast sektir á vanskilum yfir í Alma? | Allt sem er enn í útláni (vanskilum) mun hlýða sektastillingum sem hafa verið settar upp í nýja kerfinu. |
8 |
Hvað með gömul vanskil, eldri en ár, fara þau yfir í nýja kerfið |
Já, þau fara yfir. |
9 | Hversu lengi verða send út rukk- og viðvörunarbréf úr Gegni? | Til og með 30. maí. |
10 |
Fáum við útlánalista og vanskilalista í Gegni eins og áður, út maí mánuð? |
Já, til og með 30. maí. |
11 |
Bækur sem eru í útláni eftir 30. maí, verður hægt að skila þeim í nýja kerfinu? |
Já. |
12 |
Safnfærslur - hvað verður um þær? |
Þær flytjast í Alma. |
13 | Hversu lengi er hægt að nota millisafnalán í Gegni og leitir.is? (Millisafnalánaþáttur) | Til og með 8. maí. |
14 | Hvenær verða námskeið fyrir grunn- og framhaldsskóla? | 8.-31. ágúst. |
15 | Verður hægt að lána út/skila bókum eftir 31. maí? | Já, með ótengdum útlánum í Alma. Leiðbeiningar verða sendar út. Það þarf að setja upp forrit, sem þýðir að lítil söfn gætu frekar viljað halda utan um útlánin í Word og færa það handvirkt yfir í nýja kerfið eftir opnun. |
16 | Útprentun, þar með talin útprentun á marga prentara? | Leiðbeiningar verða sendar út. |
17 | Lokun á leitir.is | Hægt verður að leita í leitir.is allan tímann en innskráning verður ekki möguleg frá 31.maí. |
18 | Hvenær fæ ég notendanafn fyrir nýja kerfið? | Allir þeir sem sóttu um aðgang með því að fylla út þar til gert eyðublað fyrir 28. apríl fá sendar aðgangsupplýsingar 9. maí. |
19 | Ég sótti um aðgang að kerfinu eftir 28. april eða á eftir að gera það. Hvað geri ég til að fá aðgang? | Fylltu út eyðublaðið á https://landskerfi.is/kerfin/innleiding-almaprimo-ve/nyskraning-starfsmanns-i-alma |
20 | Hvenær verður nýja kerfið opnað? | Kerfið var opnað mánudaginn 13. júní 2022 kl. 13.50. |
21 | Hvað mun nýja kerfið heita? | Gegnir og leitir.is |
22 | Flyst útlánasaga yfir í nýja kerfið? | Nei. Virk útlán og útistandandi skuldir flytjast yfir í nýja kerfið en engin útlána- eða skuldasaga. |
23 | Verður hægt að skila í gegnum "ótengd útlán"? | Já, það er hægt, en það má ekki raða efninu upp í hillu. Það er mikil villuhætta ef sama eintak fer aftur í lán til annars lánþega. |
24 | Hvenær er hægt að prófa að tengja sjálfsafgreiðsluvélar við Alma. (Til að tryggja að þær muni virka rétt strax við opnun nýs kerfis) | Þetta verður að gerast á tímabilinu 24. - 30. maí. |
25 | Hvenær verður hægt að setja nýjar bækur inn í nýja kerfið (tengja eintök) ? | Kennsla á aðföng ("tengja eintök") hefst fljótlega eftir opnun kerfisins, en þó ekki alveg fyrstu dagana. Aðal-markhópurinn í júní eru almenningssöfn. Gert er ráð fyrir leiðbeiningum, myndböndum og fjarnámskeiðum. |
26 | Hvað með skiladaga og sektir á meðan kerfið er lokað? Var öllu framlengt? | Nýja kerfið reiknar skiladagana upp á nýtt miðað við útlánareglurnar. Lokunardagar voru stilltir til og með 13. júní fyrir öll söfn. Engar sektir reiknast á lokunartímabilinu. |
27 | Hvenær má senda inn skrár fyrir ótengd útlán? | Það þarf að bíða eftir grænu ljósi frá Landskerfi. Nánari upplýsingar verða sendar út á póstlistann þegar nær dregur. |
28 | Prentun bókamiða: Get ég notað sama miðaprentara? Get ég fengið sams konar miða og áður? | Söfnin nota áfram sína miðaprentara og þau nota áfram sitt útlit á miðunum. Leiðbeiningar um uppsetningu á miðaprenturum eru í vinnslu. |